Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Guðmundur Halldórsson hættur sem formaður Eldingar, Hálfdán Kristjánsson á Flateyri nýr formaður - Landssamband smábátaeigenda

Guðmundur Halldórsson hættur sem formaður Eldingar, Hálfdán Kristjánsson á Flateyri nýr formaður

| Athugasemdir (0)

Elding, félag smábátaeigenda á Vestfjörðum norður, hélt aðalfund sinn í gær, sunnudaginn 19. september.
Guðmundur Halldórsson frá Bolungarvík, formaður félagsins frá árinu 2000 tilkynnti í setningarræðu sinni að hann hyggðist ekki gefa lengur kost á sér til formennsku.
Það er óhætt að segja að frá því Guðmundur tók til óspilltra málanna í félagsmálabaráttu smábátaeigenda hefur gustað af þessari öldnu sjókempu að vestan. Hann hefur alið mestan sinn aldur á hafinu og þekkir þann veruleika betur en flestir.
Fátt stendur hjarta Guðmundar nær en afkoma byggðar á Vestfjörðum. Það og baráttumál smábátaútgerðarinnar hefur hann tengt saman með eftirminnilegum hætti og m.a. staðið fyrir stórfundum á Ísafirði til að vekja umræðu og athygli á þeim málefnum. Þá er margfræg línuívilnun nánast millinafn hans eftir þá atburðarás alla saman.

Tillaga þess efnis að Guðmundur yrði gerður að heiðursfélaga Eldingar var samþykkt með lófataki.

Nýr formaður félagsins er Hálfdán Kristjánsson frá Flateyri, en hann hefur til fjölda ára verið skeleggur talsmaður smábátaútgerðarinnar.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231