Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Aðalfundur Félags smábátaeigenda á Austurlandi – Gunnar Hjaltason endurkjörinn formaður - Landssamband smábátaeigenda

Aðalfundur Félags smábátaeigenda á Austurlandi – Gunnar Hjaltason endurkjörinn formaður

| Athugasemdir (0)

Aðalfundur Félags smábátaeigenda á Austurlandi var haldinn á Reyðarfirði sl. þriðjudag. A-land.jpg
Fundurinn samþykkti fjölmargar ályktanir til aðalfundar LS. Má þar nefna eftirtaldar:

Línuveiðar skipa 100 brl. og stærri verði bannaðar inna 6 sml frá grunnlínu. Í greinargerð með tillögunni segir að brýnt sé að sporna við veiðum stórra skipa á grunnslóð vegna afkastagetu þeirra. Þess eru mörg dæmi að 3 til 4 stærri skip veiði á einni viku, á grunnslóð, það sem smábátar frá einu byggðarlagi veiða á 3 mánuðum. Sé um staðbundna stofna fisks að ræða, þorsks og steinbíts, þá er þeim hætta búin með slíku veiðiálagi.AustlForm.jpg
Línuívilnun nái dagróðrabáta hvort sem beitt er eða stokkað upp í landi.
Að veiðitími á grásleppu verði styttur ef þörf er á vegna markaðsaðstæðna.
Að endurskoðaðar verði reglur um dragnótaveiðar.
Að veiðarfæratakmörkunum krókaaflamarksbáta verði aflétt.

Stjórn Félags smábátaeigenda á Austurlandi var endurkjörin, en hana skipa:
Gunnar Hjaltason Reyðarfirði formaður
Árni Jón Sigurðsson Seyðisfirði
Guðni Ársælsson Fáskrúðsfirði
Halldór Gunnlaugsson Neskaupstað
Ívar Björgvinsson Djúpavogi
Kristinn Hjartarson Neskaupstað
Ólafur Hallgrímsson Borgarfirði

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231