Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Ályktanir frá 20. aðalfundi LS – veðurspár, öldudufl, samræming reglna - Landssamband smábátaeigenda

Ályktanir frá 20. aðalfundi LS – veðurspár, öldudufl, samræming reglna

| Athugasemdir (0)

Lestur veðurfregna

Landssamband smábátaeigenda leggur til að lestur veðurfregna verði færður í fyrra horf hjá Ríkisútvarpinu.

Sjálfvirk veðurathugunarstöð og öldudufl

Landssamband smábátaeigenda ítrekar fyrri ályktanir um öldudufl við norðanvert Snæfellsnes í samráði við stjórn Snæfells um nánari staðsetningu. Einnig ítrekar LS beiðni um að sjálfvirkri veðurathugunarstöð verði komið upp á Reynisfjalli eða Dyrhólaey.

Þakkir til Siglingastofnunar

Landssamband smábátaeigenda lýsir ánægju með það framtak Siglingastofnunar að koma upp sjálfvirkri veðurathugunarstöð í Ingólfshöfða. Einnig fagnar fundurinn bættu aðgengi að upplýsingum um sjólag með birtingu þeirra á Textavarpinu.

Reglur um veiðar við sæstrengi verði samræmdar

Landssamband smábátaeigenda vill að veiðar við sæstrengi við Vestmannaeyjar verði eins og almennt er, þ.e. miðað við fjarlægð frá streng. Greinargerð Bent er á að óeðlilega stórt svæði inn af Eyjum er lokað fyrir krókaveiðum sem er langt utan þeirra marka sem almennt gilda um veiðar við sæstrengi. Mjög góð fiskimið eru á hraununum sitt hvoru megin við strengina sem gætu nýst vel smábátum. Benda má á að staðsetningartæki eru orðin mjög nákvæm.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is