Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Alþingi ræðir reglugerðarlokunina á sunnanverðum Breiðafirði - Landssamband smábátaeigenda

Alþingi ræðir reglugerðarlokunina á sunnanverðum Breiðafirði

| Athugasemdir (1)

Nú rétt áðan lauk umræðu á Alþingi um reglugerðarlokun á sunnanverðum Breiðafirði. Málshefjandi var Magnús Þór Hafsteinsson. Hann beindi eftirfarandi til sjávarútvegsráðherra: „Hæstvirtur forseti
Ég kveð mér hljóðs til umræðu um störf þingsins til að ræða þá staðreynd að sjávarútvegsráðuneytið hefur lokað stærstum hluta grunnslóðar á sunnanverðum Breiðafirði fyrir línuveiðum. Þetta gerðist með reglugerð sem ráðuneytið gaf út og tók gildi frá og með 6. nóvember. Ég vek athygli á því að þessi lokun er ótímabundin.

Þetta veiðibann hefur vakið hörð viðbrögð meðal þess fólks sem á afkomu sína undir fiskveiðum og fiskvinnslu. Ekki síst á norðanverðu Snæfellsnesi, en þessi mið eru heimamið báta sem róa frá höfnum þar. Bannið þvingar flotann til að sækja á dýpri mið lengra frá landi og það býður hættunni heim á þessum árstíma þegar veður eru válynd. Sóknarmöguleikar bátanna eru stórlega skertir. Þessu veiðibanni hefur verið líkt við að 100 til 200 manna vinnustað sé lokað fyrirvaralaust og í einum vetfangi.

Ekki er annað að sjá en að þessi lokun sé nánast byggð á geðþóttaákvörðun sjávarútvegsráðuneytis og Hafrannsóknastofnunar. Hún nær yfir gríðarlega stórt svæði, allt frá Gufuskálum í vestri og í mynni Hvammsfjarðar. Bannið er sagt koma til vegna þess að mikið af smáfisk sé á þessari slóð og nauðsyn beri að vernda hann svo veiða megi þennan fisk seinna þegar hann er orðinn stærri. En málið er að sáralítil mælingagögn liggja til grundvallar. Þorskafli sem lengdarmældur var hjá línubátum var rétt við þau mörk sem reglugerðir kveða á um, það er að fjórðungur veiddra þorska megi ekki vera undir 55 sentimetrar á lengd. Rétt rúm 25 prósent af afla féllu undir þessa skilgreiningu, en megnið af þessu var á bilinu 50 til 55 sentimetrar. Sjómenn hafa bent á að þeir telji að þessi fiskur sé orðinn kynþroska, hann er með hrognasekki. Einnig benda þeir á að dregið hafi úr vexti þorsks á þessum slóðum og hann sé því minni en áður miðað við aldur. Margt bendir til að þetta sé rétt. Ekki er tekið mið af neinum líffræðilegum þáttum við ákvörðun um að loka svæðinu, þátta á borð við aldur miðað við lengd, kynþroska og holdafar fisksins. Þetta er ámælisvert því atvinnuöryggi og lífsakoma fólks er í hættu.

Ég vil því nota tækifærið og spyrja hæstvirtan sjávarútvegsráðherra:

1. Hvers vegna hlustar hann ekki á fiskifræði sjómanna í þessu máli, manna sem eru á fiskimiðunum dögum saman, í stað þess að taka mark á ferköntuðum reglugerðaákvæðum embættismanna sem aldrei fara út á sjó?

2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að þessi svæði verði tafarlaust opnuð fyrir veiðum áfram, og lög og reglur um svæðalokanir endurskoðaðar?“

Í svari sjávarútvegsráðherra kom fram að reglugerðarlokunin væri tilkomin vegna mikils smáfisks á svæðinu. Á stuttum tíma hefur verið beitt 6 skyndilokunum og væri reglugerðin sett á grundvelli þeirra. Ráðherra sagðist vera tilbúinn að endurskoða reglugerðina ef rannsóknir gæfu tilefni til þess. Hann sagði niðurstöðu vera að vænta eftir næstu helgi.

Aðrir sem þátt tóku í umræðunni voru:
Pétur Bjarnason, Gísli Einarsson, Jón Bjarnason, Kristinn H. Gunnarsson og Sigurjón Þórðarson.

1 Athugasemdir

Samkvæmt tommustokka-fiskifræðinni ætti ekki að vera búið að ferma þónokkra fullorðna menn og konur, vegna þess að þau ná ekki 165 cm hæð.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is