Breyttar stækkunarreglur
Landssamband smábátaeigenda ályktar að afnema beri stækkunarkerfi á grásleppuleyfum nema með sameiningu veiðileyfa.Engin rauðmaganet viku fyrir grásleppuvertíð
Landssamband smábátaeigenda vill að hlé verði gert á veiðum með rauðmaganet vikuna fyrir upphafstíma grásleppuveiða.Skarkoli og skötuselur leyfilegur meðafli
Landssamband smábátaeigenda leggur til að grásleppubátum verði leyft að landa skarkola og skötusel utan kvóta, sem meðafla.Takmarkað framboð grásleppuhrogna
Landssamband smábátaeigenda leggur áherslu á að ná samkomulagi við aðrar grásleppuveiðiþjóðir um takmörkun á framboði grásleppuhrogna og ef það samkomulag næst er grásleppunefnd falið að leggja til fjölda veiðidaga og skal nefndin skila áliti fyrir 20. febrúar 2005. Þá skal einnig reyna að hamla innbyggða stækkun flotans og eftirlit með netafjölda verði eflt. Ennfremur hvetur LS til að rannsóknir á hrognkelsum verði efldar.Myndir eru frá fundi grásleppunefndar á aðalfundi











Sællir.Það er allt vitlaust ef ein og ein grásleppa kemur í trol eða snurvoð sem meðafli,nú ætli þið að landa skarkola og skötusel sem meðafla.
Ég verð að segja að hugmyndaflugið er vægast sagt ótrúlegt. Af kverju ekki þorsk líka ?