11. nóvember sl. ályktaði bæjarstjórn Fjarðabyggðar eftirfarandi:
„Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að fara þess á leit við Sjávarútvegsráðuneytið að veiðar dragnótabáta lengri en 15 metrar verði bannaðar allt árið í: Norðfjarðarflóa, Norðfirði, Hellisfirði, Viðfirði, Sandvík, Vöðlavík, Reyðarfirði og Eskifirði.
Greinargerð: Eins og ráðuneytinu er kunnugt þá hafa dragnótaveiðar verið stundaðar hér um árabil. Dragnótaveiðiflotinn í Fjarðabyggð samanstendur af frekar litlum bátum og um veiðarnar hefur ríkt tiltölulega góð sátt meðal smábátamanna. Nú í haust hefur ástandið breyst og stórir bátar hafa verið að veiðum hér í fjörðum og af því hefur skapast mikil óánægja.“
Samþykktin er mikið fagnaðarefni og hvatning fyrir önnur sveitarfélög að feta í fótspor Fjarðarbyggðar og friða heimamið fyrir hinu umdeilda veiðarfæri.









Greinargerð: "Eins og ráðuneytinu er kunnugt þá hefur rekstur iðnfyrirtækja verið stundaðar hér um árabil. Atvinnustarfsemi í Fjarðabyggð samanstendur af frekar litlum fyrirtækjum og um rekstur þeirra hefur ríkt tiltölulega góð sátt meðal smábátamanna. Nú í haust hefur ástandið breyst og stórfyrirtæki hafa hafið byggingu álvers hér í fjörðum og af því hefur skapast mikil óánægja.“
Fáranleg þvæla, ekki satt?
Nái tillögur bæjarstjórnar Fjarðarbyggðar fram að ganga, ásamt þeirri útrýmingarherferð sem Landsamband smábátaeigenda hvetur til, þá er rekstrargrundvellinum kippt undan eina vertíðarbátnum sem enn er gerður út frá þessum landsfjórðungi.
Er það fagnaðarefni?
Með kveðju,
Sigurður R. Kristinsson
Geir ÞH 150