Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Neyðarfundur í stjórn Snæfells - Landssamband smábátaeigenda

Neyðarfundur í stjórn Snæfells

| Athugasemdir (1)

Boðaður hefur verið fundur í stjórn Snæfells vegna útgáfu reglugerðar um bann við línuveiðum á stóru svæði í Breiðafirði. Reglugerðin á að koma til framkvæmda 6. nóvember.
Smábátaeigendur á Snæfellsnesi sem rætt hefur verið segja reglugerðina loka því veiðisvæði sem raunhæft er að róa á á þessum árstíma. Að róa djúpt út á þessum árstíma sé ekki forsvaranlegt. Komi reglugerðin til framkvæmda sé því verið að svipta þá atvinnunni. Málið sé því grafalvarlegt og kalli á viðbrögð.
Þá benda sjómenn einnig á að þeir telji þann þorsk sem þarna sé rétt undir viðmiðunarmörkum vera orðinn kynþroska og því eigi að veiða hann en ekki friða.

Vegna alvarleika þessa máls mun stjórn Snæfells funda um málið á morgun og fara yfir stöðuna sem upp er komin.

Til upplýsinga er slóðin að reglugerðinni þessi:

http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/0/60AE4B977F14EC8800256F41005651FA?Opendocument

1 Athugasemdir

Ég er smábátasjómaður sem stundar línuveiðar nær eingöngu á þessu svæði, sem á að fara að loka núna á morgun, enda gengur báturninn minn ekki nema 8 mílur á klst. Þetta svæði þekki ég orðið vel, því ég hef stundað veiðar á því í tuttugu ár.
Mér finnst menn frá Fiskistofu hafa hagað sér ansi undarlegar núna undanfarið. Þeir bíða á bryggjunum eins og gráir kettir og reyna að nappa menn með smáan fisk í afla eins og tilgangurinn sé sá einn að reyna að finna réttlætingu fyrir því að loka. Þeir hafa ekki sýnt því neinn áhuga að skoða og mæla aflann frá mér, eða forvitnast á nokkurn hátt um það hvar ég hef verið að veiðum. Ég er búinn að vera undanfarið á milli síðustu skyndilokana og verið að veiða ágætis fisk og alltaf um helminginn ýsu. Um daginn voru tveir vitringarnir staddir á bryggjunni og sögðust vera að "kanna viðbrögð sjómanna á staðnum við reglugerðar-lokun". Ég sagðist vera nýbúinn að landa þessum fína fiski og bað þá endilega að kíkja á hann. Ég sýndi þeim hvar ég var að veiðum og sagði mitt álit á þessum áætlunum þeirra og hvað um mig og mína atvinnu yrði ef af þessari lokun yrði. Þeir sýndu því engan áhuga að skoða eða mæla fiskinn og sögðust bara vera að kanna viðhorf manna við þessari lokun. Nú lendir þetta veiðisvæði mitt inni í hólfinu þótt ég sé búinn að vera þarna undanfarna tvo mánuði með fisk sem hefði staðist allar mælingar ef menn hefðu sýnt því einhvern áhuga að skoða eða mæla fisk sem greinilega er ekki of smár.
Nú spyr ég. Hver er tilgangurinn og hver hefur "pantað" þessa lokun? Því ásetningurinn var alveg greinilegur. Það átti að loka þessu svæði og réttlætingin skyldi finnast þótt menn þyrftu að ástunda óheiðarleg vinnubrögð til þess.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is