Eins og sjá má hér á vef LS hafa gosið upp heitar umræður um dragnótaveiðar, enn eina ferðina. Undanfarna daga hafa verið samþykktar í þremur bæjar- og sveitastjórnum ályktanir þar sem farið er fram á við stjórnvöld að breyta núverandi fyrirkomulagi.
Viðbrögð hafa verið hefðbundin, LS sakað um "heimskulegan málflutning", framkvæmdastjórinn að "misnota aðstöðu sína gróflega" (væntanlega með því að tjá sig um málið) og trillukörlum líkt við öryrkja og frekjan að drepa þá.
Allt eru þetta veigamikil rök í málinu og þakkarvert að þeim skuli hafa verið komið á framfæri.
LS bárust fyrir stuttu tvær myndir, sem teknar eru af dragnótaveiðum á Önundarfirði. Sú sem er tekin í dagsbirtu er frá því í september s.l. af dragnótaskipi að veiðum beint út af Flateyrarodda.
Hin er tekin í október af öðru dragnótaskipi að veiðum rétt utan Flateyrar.
Burtséð frá því hvort mönnum hugnast að togveiðar séu stundaðar inná flóum og fjörðum er athyglisvert að seinni myndin var tekin þegar svæðið var lokað fyrir línuveiðum, sem er nánast eina veiðarfæri smábátanna á svæðinu á þessum árstíma. Svæðinu var lokað eftir mælingar á smáfiski í afla þeirra. (Skyndilokun nr. 44/2004)
Bannið náði hinsvegar ekki til dragnótaveiða.
Af því hlýtur að vera hægt að draga þá ályktun að yfirvöld álíti að enginn smáfiskur komi í það veiðarfæri. Ef svo slysast til þarf heldur ekki við öðru að búast en að hann komi þá undantekningalaust í land - nema hann sé sýktur.
Haft var samband við Hafró og Veiðieftirlit og spurt að því hvers vegna ekki væri lokað á snurvoðina. Svör voru á þann veg að að eingöngu línufiskur hefði verið mældur.
Á sama tíma stóðu veiðieftirlitsmenn á bryggjunni og biðu þess að komast með smábátum sem voru að fara útfyrir bannsvæðið.











Umræðan hefur gengið það langt undanfarið og mikill áróður hefur verið frá trillukörlum og þeirra samtökum, að það er til skammar að bæjarfélög standi með þessari endaleysu. Þegar almenningur les og hlustar á umræðuna, hugsa margir með sér sem þekkja ekki til afhverju er verið að reyna að banna eitt veiðafæri?. Núna þegar friðunarsamtök hafa sett upp auglýsingar í mörgum fiskbúðum um heiminn um að kaupa ekki íslenskan fisk, ættu menn frekar að snúa sér að því að bæta ímynd landsins erlendis til að íslenskur fiskútflutningsmarkaður hrynji ekki. Menn ættu frekar að standa saman, en ekki að vera að reyna að útiloka eitt veiðarfæri sem er mjög gott miðað við mörg önnur. Þar sem þið eruð útvegsmenn ættuð þið líkt og aðrir sem eru í þessum geira að hugsa um framtíðina fyrir land og þjóð, en ekki bara um ykkur sjálfa.
Þessi umræða er af hinu góða,og bara gott að menn setji sín sjónarmið fram.
Ég vil óska LS. til hamingju með mjög góða heimasíðu,og mættu mörg svipuð félög taka hana til eftirbreytni.