Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Sveitarstjórn Skagafjarðar leggur til að banna dragnótaveiðar á Skagafirði - Landssamband smábátaeigenda

Sveitarstjórn Skagafjarðar leggur til að banna dragnótaveiðar á Skagafirði

| Athugasemdir (0)

Á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar 21. október sl. var samþykkt tillaga byggðarráðs Skagafjarðar um dragnótaveiðar. Í fundargerð byggðarráðs er eftirfarandi bókað um málefnið:

„Lagt fram ódagsett bréf ásamt undirskriftalistum frá smábátafélaginu Skalla, varðandi tillögu aðalfundar félagsins frá 26. september 2004 um að dragnótaveiðar verði bannaðar á Skagafirði innan línu sem dregin er úr Ketubjörgum í Almenningsnöf.

Byggðarráð tekur undir ofangreinda tillögu smábátafélagsins Skalla og samþykkir að leggja til við sjávarútvegsráðuneytið að dragnótaveiðar verði bannaðar á Skagafirði innan línu sem dregin er úr Ketubjörgum í Almenningsnöf.“

Von er á fleiri fréttum á næstunni varðandi viðbrögð sveitarstjórna við dragnótaveiðum.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231