Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

232 bátar hafa nýtt sér línuívilnun. - Landssamband smábátaeigenda

232 bátar hafa nýtt sér línuívilnun.

| Athugasemdir (0)

Það sem af er fiskveiðiári hafa 232 bátar nýtt sér línuívilnun. Aflanum hefur verið landað á alls 47 útgerðarstöðum. Með línuívilnun fæst uppbót á kvótann og hafa alls 1.384 tonn bæst við veiðiheimildir þessara báta eða 6 tonn á hvern þeirra. Skipting milli tegunda er þannig að 712 tonn er þorskur, 654 tonn ýsa og 18 tonn steinbítur.DoggSU071204.jpg
Línuívilnun í þorski skiptist á fjögur tímabil og lauk því fyrsta 30. nóvember. Áætlaður afli á tímabilinu var 1.080 tonn og það sem kom til línuívilnunar var 685 tonn. Á 2. tímabili, sem lýkur 28. febrúar, er gert ráð fyrir 1.280 tonnum af þorski til línuívilnunar.

Heimild: Fiskistofa

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231