Samkvæmt upplýsingum úr sjávarútvegsráðuneytinu mun sjávarútvegsráðherra undirrita reglugerð á morgun sem fellir úr gildi reglugerð um bann við línuveiðum á sunnanverðum Breiðafirði. Reikna má með að hún komi til framkvæmda fimmtudaginn 16. desember. Gangi það eftir hefur svæðið verið lokað í 40 daga.
Að sögn Gísla Ólafssonar varaformanns Snæfells er ástandið hjá mörgum útgerðum skelfilegt. Dæmi um að bátar sem hafa róið í 6 - 10 róðra á þessu tímabili undanfarin ár hafa nú aðeins komist í 2 róðra og sumir í engan það sem af er þessum mánuði. Því er hætt við að þunnt verði í veskjum margra fjölskyldna hér á nesinu þegar í hönd fara mikil útgjöld tengd jólunum.
Eins og fram hefur komið eru menn hér afar ósáttir við það hvernig staðið var að lokuninni. Þannig hefði verið lokað á svæði sem ekki eru kunn af smáum fiski. Þau svæði hefði verið hægt að nýta og minnka þannig gríðarleg áhrif sem lokunin hefur valdið hér. Það er von okkar Snæfellinga að slík vinnubrögð endurtaki sig ekki, sagði Gísli Ólafsson.











Skrifa athugasemd