Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Samanburður á gömlu og nýju - Landssamband smábátaeigenda

Samanburður á gömlu og nýju

| Athugasemdir (1)

Það er óhætt að segja að ekki séu allir á eitt sáttir um dragnótamálin, eins og skýrt hefur komið fram hér á vef LS sem og víðar.

Einn ágætur áhugamaður um þessa umræðu kom teikningunni sem fylgir þessari frétt til skrifstofunnar ásamt upplýsingum sem telja verður mjög áreiðanlegar um það sem teikningin á að sýna. Hlutföllin á milli stærri "dragnótarinnar" og þeirrar minni eiga að vera mjög nálægt því sem fram kemur í tölulegum upplýsingum.

Sú stærri

Stærri teikningin er af dragnót eins og algengt er að um 200 tonna bátar noti nú til dags. "Opnunin", það er bilið frá fótreipi að höfuðlínu, er 10 faðmar og höfuðlínan, sem og fótreipið 25 faðma löng. Ferhyrningurinn sýnir þessa flatarstærð. 32 mm vírmanilla, allt að 1000 faðma löng er notuð til að draga veiðarfærið á u.þ.b. 2 - 3 mílna hraða. Í dag þekkist að notaður sé "grjóthoppari" til að komst á harðan botn.

Sú minni

Minni teikningin er af dragnót eins og hún leit út um 1950. Opnunin var 2 faðmar og lengd höfuðlínu og fótreipis 10 faðmar. Þetta flatarmál er 12,5 sinnum minna en á þeirri nýju. Þetta veiðarfæri var dregið á 8 mm vír, 500 faðma löngum og aldrei farið vísvitandi inná harðan botn. Toghraðin var 1 - 2 mílur. "Skeifurnar" á teikningunni eru fótreipin.


Teikning í innbirgðis réttum hlutföllum


Teikning-dragg.jpg

1 Athugasemdir

Já það er nú sagt að áhugamenn hafi nú ekki mikið vit á því sem þeir seigja, þess vegna höfum við atvinnumenn. Ef menn eru svona rosalega vitlausir að halda að snurvoð sé eina veiða færið sem hafi tekið breytingum þá held ég að menn ættu að líta í eigin barm. Trillurnar þær haf náttúrulega ekkert breyst það eru búnar að vera 700-800 hestafla vélar í þeim síðan 1950 og sigurnagla lína og beitningarvélar, ó nei þessi smábátar hafa tekið mestu breytingunum og líka hvað ýktast, ætli að árið 1950 hafi 40-50 tonna bátar ekki verið að róa með 30 bala, 10-12 kallar á, en í dag þetta er nú bara fyrir einn trillukall. og meira ruglið í þessum "áhugamönnum" 10 faðma höfuðlínuhæð, þetta eru ýkjur og rugl og þó svo að hún tæki 30 faðma upp, hverju myndi það breyta er verið að taka einhvern fisk sem trillu karla eiga, það þarf nú ekki að seigja annað enn þessir hálvitar sem eru búnir að ver að tala um "rockhopper" á snurvoð, ég held að þeir ættu kannski að tala um eitthvað annað sem þeir hafa vit á og ekki vera þvælandi svona eins og fávíst kvennfólk um eitthvað sem þeir hafa ekki hundsvit á. Alvöru rockhopper einsog er á trolli er frá 2,5-4 tonn á meðan fótreipi á snurvoð er kannski 100-150kg og rockhopper er pressuð lengja með 3-8 tonna átaki þess vegna hoppar lengjan og og fremst á lengjunni eru stórar járn kúlur og það eru milli hólkar sem eru 3kg og þynginar og keðjur í rock hopper.Fótreipi á snurvoð er ekkert pressað, þar af leiðandi hoppar það ekki á botninum og getur ekki farið á harðan botn nema að festast eða að rífa, eina sem þessir litlu diskar á fótreipinu gera er að lifta fiskilínunni 12-15cm frá botninum, ég vona að þessi umræða um "rockhopper" hjálpi þessu ógurlega tregu mönnum sem er alltaf þvælandi að skilja hvernig þetta virkar. Og rétt er það menn er með 1000faðma, en hvað er það á mörgum stöðum sem því er kasta, það eru bara ákvðin svæði og yfirleitt á mjög miklu dýpi (ekki á grunnslóðinni) bara til þess að menn botni með veiðarfærunum. Það er nú soldið ýkt að seigja að menn séu að toga á 3mílna hraða. Ég legg til að þessir bjánar sem alltaf eru að skrifa um dragnótina ættu aðeins að vit um hvað þeir eru að tala ef þeir ætla að vera að ræða þetta á annað borð.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231