Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Svæðið opnað á miðnætti - Landssamband smábátaeigenda

Svæðið opnað á miðnætti

| Athugasemdir (2)

Sjávarútvegsráðuneytið gaf í dag út reglugerð um afnám reglugerðar um bann
við línuveiðum á sunnanverðum Breiðafirði. Reglugerðin orðast svo:
„1. gr.
Með reglugerð þessari eru felld úr gildi reglugerð nr. 866, 2. nóvember 2004, um bann við línuveiðum á sunnanverðum Breiðafirði.
2. gr
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til að öðlast gildi 16. desember 2004.“

Fyrir rúmri viku sendi LS forstjóra Hafrannsóknastofnunar bréf þar sem óskað var eftir upplýsingum varðandi lokun þá sem nú er afstaðin. Þar var beðið um sundurgreiningu á mælingunum 11 fisk fyrir fisk, lengd og aldur, ennfremur upplýsingar um kyn hvers fisks og hverjir hafa verið orðnir kynþroska.

Enn er beðið svara.

2 Athugasemdir

Til hamingju félagar í Snæfelli. Þeir í forystu Snæfells eiga hrós skilið fyrir framgöngu þeirra í þessu máli.
Nú er hins vegar mjög mikilvægt að koma saman og koma sér saman um vinnureglur á svæðinu. Mín tillaga er að við innan félagsins sammælumst um verklag við línuveiðar á svæðinu svo sagan þurfi ekki að endurtaka sig.
1. Alls ekki skal leggja línu innan þessa svæðis í myrkri.
2. Ef mögulegt er skal beita kúffiski á þetta svæði (þann tíma sem ekki fæst loðna).
3.Eftir að loðna er fáanleg í beitu skal ekki róa með aðra beitu á svæðið.

Ég held að félsgið þurfi líka að minna Hafrómenn á að hafa meiri samvinnu við okkur því ég held að við séum allir boðnir og búnir að aðstoða þá og veita þeim upplýsingar þannig að þeir geti verndað tittina sína þó þannig að þeir eyðileggi ekki allt svæðið fyrir okkur
Örvar

Það er ótrúlegt að Hafró svari ekki óskum LS um sundurgreiningu á mælingunum 11 fisk fyrir fisk, lengd og aldur, ennfremur upplýsingar um kyn hvers fisks og hverjir hafa verið orðnir kynþroska.

Það hafa heldur ekki komið nein skilaboð frá Hafró um það hver markmiðin voru með lokun svæðisins og hvort að þeim hafi verið náð.

Með kveðju

Sigurjón Þórðarson

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231