Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

„Ætli Hafró finni svo ekki eitthvað fyrir hann í sumar“ - Landssamband smábátaeigenda

„Ætli Hafró finni svo ekki eitthvað fyrir hann í sumar“

| Athugasemdir (1)

Félagsmaður í Snæfelli hafði samband við skrifstofu LS í dag og var afar óhress með 3 vikna veiðibann í apríl ofan á allt annað. „Það er nú orðin spurning hvort maður geti gert út héðan mikið lengur, og það við eina af okkar mestu gullkistum, Breiðafjörðinn. Ráðherralokanir hér, verða komnar á þriðja mánuð þegar þriðjungur verður eftir af fiskveiðiárinu.“ Átti hann þá við reglugerðarlokunina frá 6. nóvember til 16. desember og áðurgreint veiðibann í apríl. „Ætli Hafró finni svo ekki e-ð fyrir hann í sumar, þannig að þetta verði fullkomnað“ sagði félagsmaðurinn gramur í bragði.

1 Athugasemdir

sammala

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231