Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Fréttatilkynning frá Kletti vegna dragnótaveiða á Eyjafirði - Landssamband smábátaeigenda

Fréttatilkynning frá Kletti vegna dragnótaveiða á Eyjafirði

| Athugasemdir (1)

Svæðisfélag LS, Klettur á Norðurlandi hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna undanþágu sem veitt hefur verið til dragnótaveiða inn allan Eyjafjörð. Tilkynningin er svohljóðandi:

SVÆÐISFÉLAGIÐ KLETTUR Félag smábátaeigenda frá Ólafsfirði að Tjörnesi mótmælir harðlega þeirri undanþágu frá banni við dragnótaveiðum á Eyjafirði sem dragnótabátnum Sólborgu EA í eigu BRIMS hf, hefur verið veitt. Klettur hefur sent hæstvirtum sjávarútvegsráherra Árna M. Mathiesen áskorun um að fella þessa undanþágu nú þegar úr gildi.

Greinargerð:
Það er með ólíkindum að sjávarútvegsráðuneytið veiti slíkt leyfi án nokkurs samráðs við útgerðaraðila á svæðinu, ekki síst með tilliti til þess að útgerð Sólborgar hefur á sl. misserum orðið uppvís að því að fara á svig við gildandi reglur um svæðisbundnar dragnótaveiðar með „útflöggun“. Svæðisfélagið Klettur hefur á undanförnum árum margoft ályktað um dragnótaveiðar og hafa þær ályktanir allar verið á þá leið að færa veiðarnar utar í firðinum, þær eru í dag leyfilegar utan línu sem dregin er réttvísandi austur – vestur um Hríseyjarvita, jafnframt hefur félagið mótmælt harðlega öllum undanþágum frá gildandi reglum. Dragnótaveiðar á svæðum sem friðuð hafa verið til margra ára fyrir togveiðarfærum eru ekkert annað en skemmdarstarfsemi og má það með ólíkindum teljast ef að stærstu útgerðarfyrirtæki landsins telja sig ekki geta komist af nema með því að fremja skemmdarverk á friðuðum svæðum. Það hlýtur að vera sem köld vatnsgusa framan í þá aðila sem vinna að kynningu íslensks sjávarútvegs á erlendri grund undir kjörorðinu að hér séu stundaðar „ábyrgar veiðar“. Fiskgengd í Eyjafirði hefur verið í örum vexti á undanförnum árum og hafa útgerðarmenn smábáta með kyrrstæðum veiðarfærum geta nýtt sér þessa auknu fiskgengd í sinni útgerð. Það er því með mikilli skelfingu sem þessir sömu útgerðarmenn horfa upp á stórvirkt veiðiskip skarkandi með togveiðarfæri á veiðislóð sem jafnvel hefur verið friðuð í áratugi, eða aldrei verið leyfð dragnótaveiði á.

Virðingarfyllst
f.h. svæðisfélagsins Kletts

Pétur Sigurðsson formaður

1 Athugasemdir

Dragnótabáturinn Sólborg stundar tilraunaveiðar í Eyjafirði


Í tilefni af fréttatilkynningu, sem Svæðisfélagið Klettur – félag smábátaeigenda frá Ólafsfirði að Tjörnesi, hefur sent frá sér, er ástæða til að taka eftirfarandi fram:

Brim fiskeldi hefur fengið leyfi sjávarútvegsráðuneytisins tímabundið til að stunda tilraunaveiðar innan línu í Eyjafirði og inn að Hjalteyri. Tilgangur þeirra er að afla þorsks í tilraunaeldi á vegum Brims fiskeldis. Veiðarnar verða stundaðar innan svokallaðrar línu til 21. feb. n.k. en eftir það utan við línu. Tilraunaveiðar sem þessar eru mikilvægur þáttur í rannsókna- og þróunarstarfi á sviði þorskeldisrannsókna. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sólborg EA er notuð til tilraunaveiða fyrir þorskeldi, en báturinn var áður í eigu Odda á Patreksfirði og stundaði þá veiðar inni á Patreksfirði. Veiðar sem þessar er stundaðar í nokkrum mæli umhverfis landið og yfirleitt grunnt inni á fjörðum

Veiðar með togveiðarfærum í rannsóknaskyni hafa verið stundaðar um árabil í innanverðum Eyjafirði. Fyrir rúmlega tveimur árum voru stundaðar tilraunaveiðar með dragnót í um 20 daga í innanverðum Eyjafirði. Eins hefur hafrannsóknaskipið Dröfn veitt árlega með botntrolli í firðinum í þágu hafrannsókna, m.a. í samstarfi við Háskólann á Akureyri - svokallað “Eyrall”. Hafa þær rannsóknir gefið áhugaverðar niðurstöður um þróun lífríkis í Eyjafirði.

Það er stefna Brims að stuðla að ábyrgri nýtingu náttúruauðlinda, meðal annars með því að þróa fiskeldi sem raunhæfan valkost til viðbótar við veiðar á nytjastofnun sjávar. Miklir þjóðhagslegir og staðbundnir hagsmunir liggja í því að gera fiskeldi að hagkvæmum valkosti í íslenskum sjávarútvegi svo ekki sé minnst á þann markaðslega styrk sem í fiskeldi getur falist. Það er því mikilvægt að það þróunarstarf eins og nú fer fram í Eyjafirði á vegum Brims fiskeldis fái að mæta skilningi smábátasjómanna í firðinum.


Óttar Már Ingvason
Framkvæmdastjóri
Brims fiskeldis

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231