Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Krókaaflamarksbátar – aflaheimildir - Landssamband smábátaeigenda

Krókaaflamarksbátar – aflaheimildir

| Athugasemdir (0)

Aflinn september – janúar.
Á fiskveiðiárinu hafa krókaaflamarksbátar heimild til að veiða 63.003 tonn á grundvelli aflahlutdeildar sem kemur til úthlutunar. Í fyrra var sambærileg tala 54.169 tonn. Helsta ástæða fyrir aukningunni er færsla sóknardagabáta yfir í krókaaflamark. Stærstur hluti þessara talna samanstendur af þorski, ýsu og steinbít. Þorskur er 36.256 tonn, ýsa 14.101 og steinbítur 5.843 tonn. Hlutdeild þessara tegunda í heildarúthlutun er: þorskur 17,8%, ýsa 15,2% og steinbítur 37,9%.

Við fyrrgreindar heimildir þessa fiskveiðiárs bætist hlutur krókaaflamarksbáta í línuívilnun og byggðakvóta.

Á fyrstu 5 mánuðum fiskveiðiársins þegar megin uppistaða aflans er þorskur og ýsa hefur þorskveiði minnkað óverulega eða úr 10.949 tonnum í 10.614 tonn. Ýsuaflinn hefur hins vegar aukist um 8% eða tæp 600 tonn var kominn í 7.581 tonn í lok janúar.

Heimild: Fiskistofa

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is