Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Lækkun kostnaðar – tillaga að breyttum reglum. - Landssamband smábátaeigenda

Lækkun kostnaðar – tillaga að breyttum reglum.

| Athugasemdir (1)

Á aðalfundi LS 14. og 15. október sl. var eftirfarandi samþykkt:
„Landssamband smábátaeigenda mótmælir auknum álögum á sjávarútveginn sem ekki eru í samræmi við veitta þjónustu.“
9. nóvember skipaði sjávarútvegsráðherra nefnd til að fara ofan í saumana á kostnaðarliðum tengdum útgerðinni. Í skipunarbréfi segir um hlutverk nefndarinnar: „Nefndin hefur það hlutverk að gera úttekt á starfsumhverfi sjávarútvegsins og skoða hvort hægt sé að minnka álögur, einfalda og samhæfa ýmsa þjónustu og eftirlit sem ríkið innir af hendi í þeim tilgangi sérstaklega að lækka rekstrarkostnað og gera kerfið skilvikara.“
Í dag sendi nefndin frá sér áfangaskýrslu þar sem tilgreindir eru 10 liðir sem lagt er til að hljóti brautargengi. Það er mat LS að komist þessir liðir til framkvæmda mun það þýða lækkun kostnaðar hjá smábátaeigendum á fjórða tug milljóna. Þar er til að nefna að útgáfa veiðileyfa verður ekki bundin við árið heldur ótímabundin, hreinlætisskoðun smábáta verður færð frá skoðunarstofum til Fiskistofu.
Skýrslan:
http://www.sjavarutvegsraduneyti.is/frettir/nr/934

1 Athugasemdir

Svar þetta mætti vera til sjávarútvegsráðherra.
Ég vil þakka hæstvirtum ráðherra það að hann skuli
hlusta á okkar mál og skipa þessa nefnd. Nú á þessari stundu hef ég ekki séð hvaða liðir það eru sem hér má lækka kostnað. Aðalatriðið er að ráðherra hefur í verki skilið að allt það áreiti sem við höfum mátt þola um gjöld af öllum mögulegum og ómögulegum tilefnum eru komið út fyrir eðlileg mörk. Árni ég geri ráð fyrir að þú lesir þetta og við þig vil ég segja. Takk fyrir og höldum áfram á sömu braut.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is