Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Hrollaugur telur einkavæðingu skipaskoðunar ekki hafa skilað viðunandi árangri - Landssamband smábátaeigenda

Hrollaugur telur einkavæðingu skipaskoðunar ekki hafa skilað viðunandi árangri

| Athugasemdir (4)

Á fundi stjórnar Hrollaugs þ. 14. mars sl. var mikið rætt um breytt fyrirkomulag skipaskoðunar. Af því tilefni ákvað stjórnin að koma eftirfarandi á framfæri um skoðunarmál:Höfn 17.3.jpg
„Ekki er ásættanlegt að kröfur um öryggisbúnað báta breytist við það eitt að settir séu flotkassar aftan á þá sem teygja þá yfir 8 metra mörkin. Einnig er óásættanlegt að skoðunarstofum skuli ekki heimilt að lengdarmæla báta eftir breytingar, þó svo að þeim sé treyst til að framkvæma þykktarmælingu og aðrar athuganir sem breytingarnar varða. Dæmi eru um að lengdarmæling á einum smábát framkvæmdri af Siglingastofnun hafi kostað viðkomandi útgerð 70.000.- kr. sem kom til viðbótar öðrum skoðunargjöldum.
Það er mat stjórnarinnar að hagræðing og aukin skilvirkni sem var hvati einkavæðingar á skipaskoðunum, hafi ekki skilað sér sem skyldi. Stjórn Hrollaugs telur að mesta hagræðingin sé fólgin í að láta einkaaðilana sjá um allt ferlið sem er svo fylgt eftir með skilvirku skyndieftirliti.“

Formaður Hollaugs er Snorri Aðalsteinsson

4 Athugasemdir

Tek undir með Hornfirðingunum, þetta eftirlitsbatterí er með ólíkindum.
Og það að núna þurfi að hafa Siglingarstofueftirlit með skoðunarstofueftirlitinu er brandari, starfsmenn skoðunarstofanna eru flestir fyrrverandi starfsmenn Siglingarstofu og núna er allt í einu ekki hægt að treysta þeim til að skoða eftirlitslaust ?
Ég hvet menn til að tjá sig hérna á vefnum um þessi mál,og fóðra okkar menn hjá LS með upplýsingum og dæmum þannig að þeir geti beitt sér af alefli gegn þessum ófögnuði.

Ég fór á heimasíðu hjá Siglingamálastofnun og við skoðun á starfsreglum hjá Siglingastofnun sé ég að þeir skoðunarmenn Frumherja sem hingað á Hornafjörð hafa komið hafa fulla heimild til að lengdarmæla báta, skv meðfylgjandi.

Stoðrit S07-01 Útgefið gæðaskjal: Verklagsregla
Skjalnúmer: VL-836
Útg.d: 16.02.2005
Útgáfa: 2.0
Áb.maður: Hermann Guðjónsson
25.03.02.02.02 Mæling báta með mestu lengd allt að 15 metrum

Skjalnúmer: VL-836
Áb.maður: Geir Þ Geirsson
Útgáfa: 2.0
Útg.d: 15-02-2005
Mæling báta með mestu lengd allt að 15 metrum

Mæling báta með mestu lengd allt að 15 metrum
------------------------------------------------------------------------------------------------------
Kemur í stað verklagsreglu nr. 1/24-11-2004
Sjá einnig verklagsreglu í kafla nr. 3.2.2.3.
Dreifing: Til þeirra sem málefnið varðar
-------------------------------------------------------------------------------------------------------
1. Laga- og reglugerðastoð:
1. Lög um Siglingastofnun Íslands, nr. 6/1996.
2. Reglugerð um mælingu skipa með lengd allt að 24 metrum, nr. 527/1997.

_____________ _____________ _____________

10. Hæfniskröfur til mælingarmanna.
Mælingarmaður skal vera verkfræðingur eða tæknifræðingur með sérmenntun á sviði skipa og hafa góða almenna þekkingu á skipum. Einnig geta skoðunarmenn, sem uppfylla ákvæði 10. gr. Reglugerðar um starfshætti faggiltra skoðunarstofa skipa og búnaðar, nr. 94/2004, mælt þá báta sem þeir hafa heimild til að bolskoða, hafi þeir tekið námskeið í mælingum skipa.

Fyrrverandi starfsmenn Siglingastofnunar, sem mældu báta af umræddri stærð í nafni hennar og skiluðu skriflegum niðurstöðum, halda réttindum sínum til að mæla þá báta sem þeir hafa heimild til að bolskoða.

Hvað er að ágætu Frumherjamenn af hverju lengdarmælið þið ekki bátana fyrir okkur.
Svar óskast.
Kveðja Unnsteinn Guðmundsson Höfn Hornafirði

Sæll Unnsteinn
Já af hverju mælum við ekki báta eftir breytingar. Á fundi A skoðunarstofa og Siglingarstofnunar þann 15-03-2004 kom fram að SÍ hefði ákveðið að mæling skipa og vottun hallaprófun skuli framkvæmast af A skoðunarstofum og væri nánari útfærsla í vinslu,ekkert heyrðist meira af því máli fyrr en verklagsreglur útgáfa 2 komu út þann 15-02-2005 mæling skipa að mestulengd 15m. Ekki er komið á hreint hvernig verður staðið af því að gefa út leyfi til A stofa að framkvæma mælingar sakvæmt símtali við Helga Jóhannsson forstöðumann hjá SÍ þann 17-03-2005.
Ég skil vel undrun manna sem hafa verið að breyta bátum sínum þar sem A stofur hafa haft eftirlit með breytingum að það skuli svo koma skoðunarmaður SÍ til að lengdarmæla bátinn því of með miklum kostnaði. Þetta er ekki sú hagræðing sem átt að ná með því að færa skoðanir frá SÍ til einkarekinna skoðunatstofa þar sem eitt af markmiðunum var að fækka ferðum í skipin og draga sem mest úr kostnaði fyrir útgerð.
Kveðja
Stefán Hans Stephensen skipaskoðunarsviði Frumherja hf

Sæll vertu Stefán og takk fyrir upplýsingarnar.

Ég ætla ekki að tjá meir um þessi mál í bili og vona að framkvæmd skoðunar komist í lag hið snarasta.
Þetta er gjörsamlega óþolandi eins og er.
Kveðja Unnsteinn

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231