Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Útflutningsverðmæti grásleppukavíars og hrogna minnkar um fjórðung - Landssamband smábátaeigenda

Útflutningsverðmæti grásleppukavíars og hrogna minnkar um fjórðung

| Athugasemdir (0)

Heildarútflutningsverðmæti grásleppukavíars og hrogna nam rúmum milljarði á sl. ári. Árið 2003 skilaði hins vegar tæpum 1350 milljónum. Minnkunin er því 340 milljónir, þ.e. fjórðungur milli ára.
Verðmæti kavíars og hrogna á sl. ári var nánast það sama rétt rúmur hálfur milljarður. Á árinu 2003 var verðmæti kavíars hins vegar 767 milljónir og saltaðra grásleppuhrogna 580 milljónir. Í magni talið minnkaði kavíarinn hlutfallslega jafnt og verðmætin þar sem verðið stóð nánast í stað. Það sama var uppi á teningunum með söltuðu hrognin, þó lítilsháttar verðhækkun. Hver tunna af söltuðum hrognum skilaði 824 Evrum 2003, en á sl. ári 848 sem jafngilti 73.691 krónu.

Heimild: Hagstofa Íslands

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231