Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Aflabrögð komin í kunnuglegar stærðir - Landssamband smábátaeigenda

Aflabrögð komin í kunnuglegar stærðir

| Athugasemdir (0)

Frá Færeyjum berast þær fréttir að þessa dagana séu aflabrögð með daprasta móti. Nánast ekkert fæst á línuna ekki einu sinni ýsa, að sögn Auðuns Konráðssonar formanns Meginfélags Útróðramanna sem jafnframt er formaður Samtaka strandveiðimanna við N-Atlantshaf.DSCFAuðunn0005_3.jpg Við kippum okkur þó ekkert upp við þetta þar sem ekki er svo langt síðan sama ástand varði í nokkur ár svo við erum öllu vanir. Í dag er aftur á móti betra ástand til sjávarins en þá var svo við gerum ráð fyrir að þetta ástand vari nú ekki nema í nokkrar vikur eða meðan fiskurinn er að ná sér eftir hrygninguna. Þetta er mikill viðsnúningur frá sl. árum þar sem ekkert rof hefur verið á góðum aflabrögðum fyrr en nú.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231