Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Banderas í botntrollin - Landssamband smábátaeigenda

Banderas í botntrollin

| Athugasemdir (0)

Kvikmyndastjarnan Antonio Banderas hefur ákveðið að leggja umhverfissamtökunum Oceania lið í baráttu gegn botntrollsveiðum við Chile.

Innan skamms mun auglýsingum útvarpað í Chile þar sem Banderas heyrist segja: „Ég er Antonio Banderas, mig langar að úskýra fyrir ykkur að í Chile er beitt einhverri verstu aðferð við fiskveiðar – botntrolli. Þessi aðferð veiðir ekki bara fisk, hún fer um sjávarbotninn eins og plógur...“.

Ástæða þess að Banderas leggur þessari herferð lið er fyrst og fremst mikil aðdáun hans á hafinu, en sá sem bauð honum þátttökuna var Ted Danson, sem flestir kannast við úr sjóvarpsþáttunum Staupasteini. Danson er einn stjórnenda Oceania.

Banderas segir fleira í auglýsingunum: „Óskammfeilin notkun þessarar veiðiaðferðar er megin skýringin á hnignandi fiskstofnum og efnahagslegu skipbroti strandveiðisamfélaga sem byggja á strandveiðum. Oceania vinnur að því draga úr þessari veiðiaðferð og þannig draga úr óbætanlegu tjóni á umhverfinu í hafinu“.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231