Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Bann við löndun óslægðs afla dagróðrarbáta um helgar á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 2005 - Landssamband smábátaeigenda

Bann við löndun óslægðs afla dagróðrarbáta um helgar á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 2005

| Athugasemdir (0)

Fiskistofa hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu:
„Á tímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert er ekki heimilt að landa óslægðum fiski af dagróðrarbátum á laugardögum og sunnudögum, sbr. 5. tl. 1. kafla Viðauka 1 og 2. tl. kafla I Viðauka 4 í reglugerð nr. 233/1999, sbr. 2. og 3. gr. reglugerðar nr 387/2000.

Fiskistofa getur veitt undanþágu frá þessu banni, enda verði sýnt með óyggjandi hætti fram á að skilyrði um slægingu í landi séu uppfyllt, eins og kveðið er á um í reglugerðinni.

Fiskistofa heimilar löndun óslægðs afla af dagróðrarbátum um helgar á fyrrgreindu tímabili, einungis hjá þeim fyrirtækjum sem undirritað hafa yfirlýsingu þess eðlis að slæging muni fara fram innan 12 stunda frá því að afla er landað, jafnt um helgar sem aðra daga. Yfirlýsingin skal staðfest af Fiskistofu og höfð til sýnis þar sem sjómenn og eftirlitsmenn geta gengið úr skugga um að viðkomandi hafi leyfi til að taka á móti óslægðum afla um helgar á umræddu tímabili. Löndun óslægðs afla hjá öðrum aðila en þeim sem fengið hafa staðfesta undanþágu, er óheimil og á ábyrgð viðkomandi skipstjóra.

Undanþágan gildir aðeins gagnvart bátum sem hafa veiðiheimild og gilt starfsleyfi (IS-númer).

Frestur til að sækja um undanþágu er til 1. júní 2005 .

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is