Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Hvað gekk sjávarútvegsráðuneytinu til að geta ekki um frávik frá ráðgjöf Hafró varðandi grálúðuna? - Landssamband smábátaeigenda

Hvað gekk sjávarútvegsráðuneytinu til að geta ekki um frávik frá ráðgjöf Hafró varðandi grálúðuna?

| Athugasemdir (1)

Fréttin um grálúðuna hér á vefnum í gær virðist hafa komið mönnum mjög á óvart. Almennt var talið að ráðherra hefði farið eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, eins og greint var frá í fjölmiðlum og þeir væntanlega byggt á fréttatilkynningu sjávarútvegsráðuneytisins. Í henni kom fram að aðeins hefði verið vikið frá ráðgjöfinni „í skrápflúru verður 3.500 tonn (1.500 tonn umfram ráðgjöf), í skarkola 5.000 tonn (1.000 tonn umfram ráðgjöf), í sandkola 4.000 tonn (1.500 tonn umfram ráðgjöf), í löngu 5000 tonn (500 tonn umfram ráðgjöf), í þykkvalúru 1.800 tonn (200 tonn umfram ráðgjöf), í skötusel 2.500 tonn (300 tonn umfram ráðgjöf), í langlúru 2.400 tonn (200 tonn umfram ráðgjöf) og í humri 1.800 tonn (eða 200 tonn umfram ráðgjöf)“ (tlv. úr fréttatilkynningu sjávarútvegsráðuneytisins frá 22. júní sl.).
Eðlilegt er að spurt sé: Hvað gekk sjávarútvegsráðuneytinu til að geta ekki um frávik frá ráðgjöf Hafró varðandi grálúðuna? Svar óskast.

1 Athugasemdir

kanski vantar okkur davið?til að fa meiri þorsk

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231