Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Skyndilokanir á kolmunnaveiðar - þorskur tæpum fjórum sinnum hærra hlutfall en í Næraberginu. - Landssamband smábátaeigenda

Skyndilokanir á kolmunnaveiðar - þorskur tæpum fjórum sinnum hærra hlutfall en í Næraberginu.

| Athugasemdir (0)

Mikil viðbrögð hafa orðið við fréttum af meintum meðafla kolmunnaskipa. Félagsmenn hafa haft samband við skrifstofuna og lýst ánægju sinni með að LS hafi vakið athygli á hversu gríðarleg verðmæti fara í súginn við veiðarnar. Fórnarkostnaður við þær allt of mikill. Þá hafa aðilar einnig vakið athygli á að það gerist við fleiri veiðar en kolmunna að menn ætla sér ekki að veiða þorsk. Þar eru nefndar grásleppuveiðar, þar er aftur á móti lögum um stjórn fiskveiða framfylgt og menn þurfa að láta kvóta á móti þeim þorski sem þannig er „óvart“ veiddur.

Í hádegisfréttum RÚV í dag gagnrýndi Marteinn Einarsson skipstjóri á Ingunni AK harðlega hvernig menn hafa ályktað af mælingu Fiskrannsóknastofu Færeyja um borð í kolmunnaveiðiskipinu Nærabergi að ætla að þetta hlutfall væri meðaltalið við veiðarnar. Mælingarnar í Nærabergi sýndu að meðafli af ufsa væri 3,6% og af þorski 0,7%.

Samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun virðast mælingar í Nærabergi aðeins barnaleikur við þær mælingar sem lágu til grundvallar skyndilokun 20, 21 og 22 á Þórsbanka. Þar fór þorskurinn upp í 2,3% af heildarafla, þ.e. tæpum fjórum sinnum meira en í mælingu Færeyinganna. Framreikningar eins og framkvæmdir voru hér á síðunni eru því síst fjarri lagi eins og skipstjórinn heldur fram.

LS ætlar ekki að leggjast í deilur um það hversu mikill meðafli er hjá kolmunnaskipunum, en ítrekar kröfur sínar um að lögum um stjórn fiskveiða verði framfylgt við kolmunnaveiðar jafnt sem bolfiskveiðar báta.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231