Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Smábátar - ekki lengur skylt að gera samning við skoðunarstofur um eftirlit með hreinlæti - Landssamband smábátaeigenda

Smábátar - ekki lengur skylt að gera samning við skoðunarstofur um eftirlit með hreinlæti

| Athugasemdir (0)

Eins og komið hefur fram hér óskaði LS eftir því við sjávarútvegsráðuneytið að smábátaeigendur yrðu undanþegnir samningsskyldu við skoðunarstofur varðandi eftirlit með hreinlæti. Nefnd sem sjávarútvegsráðherra skipaði 9. nóvember sl., sem m.a. hefur það hlutverk að gera úttekt á starfsumhverfi sjávarútvegsins og skoða hvort hægt sé að minnka álögur, fékk málefni LS til meðferðar. Nefndin var sammála erindi LS og hefur sjávarútvegsráðuneytið nú breytt reglugerð um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða. Eftirlitið verður framvegis í höndum Fiskistofu og mun ekki leiða til hærri gjalda til hennar. Gera má ráð fyrir að breytingin lækki útgerðarkostnað smábáta um 7 milljónir á ársgrundvelli.

Ný reglugerð orðast svo:
Reglugerð um breytingu á reglugerð um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða nr. 233, 30. mars 1999, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður sem verður 5. töluliður:
5. Fiskiskip undir 15 brúttótonnum skulu undanþegin þeirri skyldu að hafa samning við faggilta skoðunarstofu. Fiskistofa annast eftirlit með því að þessi skip uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til hreinlætis, búnaðar og meðferðar afla samkvæmt reglugerð þessari.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. laga nr. 55, 10. júní 1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð 429/1992 um fyrirkomulag eftirlits með sjávarafurðum.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 2. júní 2005.“

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231