Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Útgerð skal greiða kostnað vegna tilkynninga um umframafla - Landssamband smábátaeigenda

Útgerð skal greiða kostnað vegna tilkynninga um umframafla

| Athugasemdir (0)

1. júní 2005 tóku gildi breytingar á lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, sem m.a. fela í sér að útgerð skuli bera kostnað af sendingu símskeyta vegna umframafla. Fiskistofu er nú heimilt að fallast á að tilkynningar fari fram með öðrum sannanlegum hætti en símskeytum, enda hafi útgerð lagt fram tillögur um slíka framkvæmd sem Fiskistofa metur fullnægjandi.

Í lögunum er jafnframt áréttað að óheimilt sé að stunda veiðar eftir að símskeyti hefur borist móttakanda nema að fenginni staðfestingu Fiskistofu.

Heimild: Fiskistofa.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231