Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Grásleppuvertíðinni lokið - Landssamband smábátaeigenda

Grásleppuvertíðinni lokið

| Athugasemdir (1)

Á mánudaginn var 18. júlí lauk grásleppuvertíðinni. Það voru grásleppuveiðimenn í innanverðum Breiðafirði sem dróu síðastir upp, en þeir hófu vertíðina ekki fyrr en 20. maí.
Að sögn Björgvins Guðmundssonar í Stykkishólmi var veiði þar nokkuð góð og skilaði vertíðin nú meiru magni en á sl. ári eða um 700 tunnum.

Innan nokkurra daga munu tölur um heildarveiði liggja fyrir, en gera má ráð fyrir að hún hafi farið yfir 7000 tunnur.

1 Athugasemdir

Gott kvöld.

Eitt þessum málum tengt sem ég ( og vafalítið fleiri ) vildi heyra fréttir af.

Innanbúðar hjá LS var sl vetur ákveðið að fá 20 daga styttingu veiðitímabils grásleppu sem ugglaust er meginástæða þess að veiðin varð einungis 7,000 tnr. Þessi ráðstöfun var auglýst sem samráðsverkefni við önnur framleiðslulönd.

Er ekki tímabært að greina frá veiðitölum og samanburði milli ára erlendis frá?

Vilhjálmur Jónsson
Vopnafirði

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231