Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Byggðakvótinn - Landssamband smábátaeigenda

Byggðakvótinn

| Athugasemdir (4)

Snörp umræða á sér nú stað um byggðakvótann, en í sl. viku tilkynnti sjávarútvegsráðherra um úthlutun hans.
Til upplýsinga er rétt að taka fram að byggðakvótinn samastendur af þorski - 2.514 tonn, ýsu - 1.000 tonn, ufsa - 376 tonn og steinbít - 121 tonn eða alls 4.010 þorskígildi. Ígildin á næsta fiskveiðiári verða 810 fleiri en nú er. Bætt er 328 tonnum við þorskinn (15%), 347 tonnum við ýsuna (53%), ufsinn hækkaður um 107 tonn (40%) og steinbítur um 28 tonn (31%).

Í hádegisfréttum RÚV er haft eftir framkvæmdastjóra LÍÚ að líklegt sé „að mál verði höfðað á hendur ríkinu vegna byggðakvóta og annarra sértækra aðgerða við úthlutun kvóta. Slíkt jafngildi eignaupptöku og standist ekki eignarréttarákvæði stjórnarskrár“.

LS hefur ekki andmælt byggðakvóta, enda telur félagið að hann sé nauðsynlegur til að sátt haldist um stjórnkerfi fiskveiða. Þá er rétt að minna á að byggðakvóti ætti ekki að koma neinum útgerðarmanni á óvart né sú aðferð sem notuð er við úthlutun hans. Þegar ákvörðun er tekin um að bæta við sig veiðiheimildum er það gert með þeim forsendum sem koma fram í lögum um stjórn fiskveiða. Af þessum sökum kemur upphlaup LÍÚ á óvart.

Þá er rétt að taka fram að skýrt er kveðið á um í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða að úthlutun veiðiheimilda myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum. Nýtingaréttur sem útgerðarmenn eru stöðugt að berjast um er því „eign“ (innan gæsalappa), en eins og heildarafli getur aukist eða minnkað milli ára.

4 Athugasemdir

Byggðakvótar skapa enga sátt, þeir eru misnotaðir
af pólitíkusum til að hygla þeim sem þeir hafa vel-
þóknun á, samanber það sem gerst hefur á Ísafirði.
Miklu nær væri að láta þessi tonn í línuívilnunar-
pottinn, það kemur landsbyggðinni sannarlega til
góða.
Mín skoðun er sú að LS eigi að berjast fyrir alla
félagsmenn, en ekki að standa í baráttu fyrir póli-
tískum gæludýrakvóta.

Línuíviljun á engan rétt á sér og á að afnema hana starx. Það er mjög harkalega veigið að öðrum veiðafærun með línuíviljun, sem er mjög erfitt að horfa upp á, Þar sem línuveiðar koma landsbyggðinni ekki frekar til góða frekar en mörg önnur veiðafæri.

Línuívilnun á fullan rétt á sér, þar sem hún hvetur til vistvænna veiða, og skilar einnig besta
og verðmætasta hráefninu. Efla þyrfti ívilnunina
þannig að hún næði til allra krókaveiða og færi upp
í 20%, slík aðgerð myndi skila miklum arði fyrir
þjóðarbúið og efla fiskistofnana.
Línu og krókaveiðar hafa alla tíð verið að mestu
bundnar við landsbyggðina, að mun meira leiti en
önnur veiðarfæri.


Er ekki komin tími til að við félagar í LS förum að hugsa okkar gang í þessu byggðakvótaþvælu.
Við vitum það allir að ef Gunni fær úthlutað úr byggðarkvótanum 10 eða 15 tonnum, þá missir Siggi einhver prósent af sínum kvóta sem nátturlega hann er ekki par hrifin af. Væri bara ekki helvíti sniðugt að LS afþakkaði fyrir okkar hönd allan byggðarkvóta.

Er ekki komin tími til að LS fari að ræða þessi mál og stoppi þetta ranglæti.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231