Í fréttatilkynningu Fiskistofu kemur fram að þorskafli í nýliðnum júlí var 23% minni en í júlí í fyrra. Nú veiddust aðeins 8.796 tonn á móti 11.425 tonnum á sama tíma í fyrra.
Helsta ástæða þessa samdráttar er afnám sóknardagakerfisins. Í júlí á sl. fiskveiðiári var þorskafli þeirra 290 sóknardagabáta í kerfinu voru 3.060 tonn.
Samanlagður þorskafli krókabáta í júlí var 3.808 tonn en í sama mánuði fyrir ári var hann 5.102 tonn.











Skrifa athugasemd