Á norðanverðum Vestfjörðum, félagssvæði Eldingar, hefur sprottið upp hópur sem vill stórauka línuívilnun á kostnað byggðakvótans. Fyrir hópnum fer Guðmundur Halldórsson fyrrverandi formaður Eldingar og segir hann málið hafa mikið fylgi á hans svæði. Guðmundur segir línuívilnun hafa nýst Vestfirðingum einkar vel og rétt sé að slá á það ósætti sem ríkir um byggðakvótann með því að útfæra línuívilnun eins og stefnt var að í upphafi. Þar á Guðmundur við að línuívilnun nái til allra dagróðrabáta sem róa með línu, hvort heldur sé beitt í landi, notuð beitningatrekt eða vélbeitt. Einnig að ívilnunin verði aukin, þannig að 80% af afla þessara báta teljist til kvóta og þá sé engin tegund undanskilin.











Vil taka undir þessar hugmyndir, ósættið í kringum byggðakvótann er endalaust og sveitastjórnarmenn valda því oft ekki að úthluta svo vel fari.
Engin hreyfing hefur verið til að jafna það óréttlæti sem felst í að uppstokkun í landi teljist ekki jafngildi þess að handbeita. Ráðuneytið hefur ekki þurft að rökstyðja eða útskýra þessa ákvörðun opinberlega og tímabært að LS kalli eftir því. Línuívilnun er rangnefni, frekar ætti að kalla þetta balaívilnun.
Vilhjálmur Jónsson, Vopnafirði