Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Aðalfundir svæðisfélaga – 4 fundir um helgina og 2 á mánudag og þriðjudag - Landssamband smábátaeigenda

Aðalfundir svæðisfélaga – 4 fundir um helgina og 2 á mánudag og þriðjudag

| Athugasemdir (0)

Sannkölluð fundarhelgi fer nú í hönd hjá smábátaeigendum. Á morgun laugardag halda 2 svæðisfélög aðalfundi sína. Reykjanes fundar í Salthúsinu í Grindavík og hefst fundurinn kl 17:00 og Fontur fundar á Þórshöfn og hefst sá fundur kl 14:00.
Á sunnudaginn verður aðalfundur Eldingar á Hótel Ísafirði og hefst hann kl 14:00 á sama tíma heldur Klettur sinn aðalfund á Fiðlaranum á Akureyri.
Á mánudag verður aðalfundur Árborgar í Ráðhúskaffi á Þorlákshöfn og hefst kl 20:00.
Þessari fundarhrinu lýkur svo á þriðjudag þegar Hrollaugur heldur sinn aðalfund í Víkinni og hefst hann kl 20:00.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231