Mjög góður rómur hefur verið gerður að framtaki LS á Íslensku sjávarútvegssýningunni. Fjölmargir hafa heimsótt básinn (A-102) gætt sér á Cavka-kavíar, séð brot úr kvikmynd sem LS vinnur að „Þeir fiska sem róa“, hitt kunningjana og fræðst um starfsemi landssambandsins.
Sýningin er nú hálfnuð verður opin í dag frá 10:00 – 18:00 og á morgun lýkur sýningunni en þá er opið frá 10:00 – 16:00.
Myndin er tekin við opnun sýningarinnar þar sem skrifstofustjóri LS Oddbjörg Friðriksdóttir gerir allt klárt fyrir væntanlega gesti.![]()











Skrifa athugasemd