Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Málþing um nýliðun og framleiðslugetu þorskstofnsins - Landssamband smábátaeigenda

Málþing um nýliðun og framleiðslugetu þorskstofnsins

| Athugasemdir (2)

Fréttatilkynning frá Hafrannsóknastofnun: „Þorskstofninn er mikilvægasti nytjastofn þjóðarinnar. Skoðanaskipti og umræða um þorskrannsóknir og nýtingu stofnsins eru nauðsynleg og því efnir Hafrannsóknastofnunin, á 40 ára afmælisári sínu, til málþings í samvinnu við sjávarútvegsráðuneytið undir yfirskriftinni: Nýliðun og framleiðslugeta þorskstofnins.

Á þinginu flytja innlendir og erlendir sérfræðingar í þorskrannsóknum erindi um rannsóknir sínar, svara fyrirspurnum og taka þátt í umræðum. Málþingið er liður í þeirri eflingu umræðu um fiskifræðileg málefni, sem Hafrannsóknastofnunin hefur beitt sér fyrir undanfarið – m.a. með reglulegum fundarferðum um landið, greinaskrifum og öflugri upplýsingamiðlun.

Málþingið verður nk. mánudag 7. nóvember á Grand Hótel í Reykjavík og stendur frá kl. 13.00 til 17.15. Allir eru velkomnir.

Dagskrá:
Setning málþings 13:00-13:10
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra

Hrygningarstofn og nýliðun þorsks við Ísland 13:10-13:35
Björn Ævarr Steinarsson, Hafrannsóknastofnunin

Er samband á milli stærðar hrygningarstofns og nýliðunar- 13:35-14:00
þorskstofnar í Norður Atlanshafi
Ransom A. Myers, Dalhousie University, Halifax, Kanada

Fyrirspurnir og umræður 14:00-14:20

Kaffihlé 14:20-14:35

Þorskstofninn við austurströnd Kanada – stærð 14:35-15:00
hrygningarstofns, útbreiðsla og afföll
Michael Sinclair, Bedford Institute of Oceanography,
Kanada

Mikilvægi stofneininga og samsetning hrygningarstofns 15:00-15:25
Guðrún Marteinsdóttir, Háskóli Íslands

Þorskur við Færeyjar – hrygningarstofn og nýliðun 15:25-15:50
S. Hjalti í Jákupsstovu, Fiskirannsóknastovan, Þórshöfn,
Færeyjar

Áhrif veiða á lífssögu þorsks 15:50-16:15
Guðmundur Þórðarson, Hafrannsóknastofnunin

Kaffihlé 16:15-16:30

Umræður og fyrirspurnir 16:30-17:10

Samantekt og fundarslit 17:10-17:20
Jóhann Sigurjónsson, Hafrannsóknastofnunin

Móttaka í boði sjávarútvegsráðherra 17:30

Fundarstjóri: Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstj. Ísafjarðarbæjar

2 Athugasemdir

Hafró er fertug þessa daganna og ætlar stofnunin að halda upp á afmælið með ráðstefnu. Málið sem á að ræða er samband hrygningarstofns og nýliðunar.

Gögn frá Færeyjum gefa skýrt til kynna að um öfugt samband nýliðunar og hrygningarstofns sé að ræða. Líffræðileg rök hver ástæðan geti verið fyrir þessu öfuga sambandi, þ.e. þegar mikið er af fiski fyrir þá er bæði minna æti til skiptanna fyrir nýliða og meira um afrán eldri þorsks á smáum fiski. Jón Kristánsson fiskifræðingur hefur bent á þetta öfuga samband og ég hef gögn undir sérfræðinga í líffræði við Háskóla Íslands sem hafa tekið undir að um mjög athyglisverð gögn sé að ræða sem gefa ótvírætt til kynna að um öfugt samband sé að ræða sem vert sé að skoða frekar.

Sérfræðingar Hafró hafa ýtt þessum vísindagögnum til hliðar og halda fast í fyrri kenningar um að nauðsynlegt sé að hafa stóran hrygningarstofn til þess að tryggja nýliðun.

Nú eins og áður segir þá hefur Hafró boðað til ráðstefnu um samband nýliðunar og hrygningarstofns en stofnunin tekur þá ákvörðun að bjóða ekki neinum sem hafa leyft sér að efast um umdeildar kenningar stofnunarinnar.

Þetta væru eflaust eðlileg vinnubrögð ef um einhverja áróðursstofnun væri að ræða en hér er óvart um vísindastofnun að ræða. Það stríðir einfaldlega gegn eðli vísinda að forðast gagnrýni og taka ekki rökræðu um umdeild mál.

Það eru fleiri líffræðingar sem eru farnir að gagnrýna Hafró opinberlega en þar má nefna fyrrum kennara minn, Össur Skarphéðinsson sem taldi það ekki traustvekjandi að Hafró slægi um sig þéttum varnarmúr fyrir andstæðum skoðunum.

Ég hef mikinn áhuga á fiskifræði og fiskveiðistjórn en ég efast um að ég nenni að fylgjast með svona leikaraskap.

Sæll Sigurjón:

Ég les þessi skrif þín af athygli og virði við þig að þú skrifar á heimasíðu smábátaeigenda af og til, en þar ert þú oftast einn á báti.

Einhvernveginn virðist mér að sjávarútvegsráðherra efni til þessa málþings í því skyni að upphefja sitt starfsvið, hann er jú eins og við vitum báðir ekki maður orða sinna og því erfitt að reikna með að alvara sé bakvið þessa ráðstefnu.

Mér finnst að athugasemd félaga þíns, Guðjóns Arnar, um hlutfall aldurs og þyngd þorsks aftur í tímann segi allt sem segja þurfi um hvernig við höfum staðið að því að nytja stofninn, því miður.

Með kveðju
Vilhjálmur Jónsson
Skálanesgötu 15, Vopnafirði

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231