Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Meira veitt af ýsu en þorski - Landssamband smábátaeigenda

Meira veitt af ýsu en þorski

| Athugasemdir (0)

Það vekur athygli þegar rýnt er í bráðabirgðatölur Fiskistofu að krókaaflamarksbátar hafa á fyrstu tveim mánuðum fiskveiðiársins veitt meira af ýsu en þorski. Ýsuafli þeirra er kominn yfir fjögurþúsund tonn – 4.086 tonn, en af þorski veiddust 3.975 tonn. Ýsuaflinn nú er rúmum fjórðungi meiri en hann var á sama tímabili á sl. fiskveiðiári, eða 865 tonn. Hins vegar var lítil aukning í þorskafla krókaaflamarksbáta, aðeins 99 tonn, 2,5%.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231