Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
30% aukning ýsuaflans - Landssamband smábátaeigenda

30% aukning ýsuaflans

| Athugasemdir (0)

Á fyrsta fjórðungi fiskveiðiársins hefur ýsuafli krókaflamarksbáta aukist um 1.575 tonn frá sama tíma í fyrra sem svarar til 30% aukningar. Aflinn var kominn í 6.752 tonn um síðustu mánaðamót sem er rúmur fjórðungur af heildarafla í ýsu á tímabilinu.

Þorskveiði krókaaflamarksbáta gekk einnig vel á fyrstu þremur mánuðum fiskveiðiársins, aukning um tæp þúsund tonn milli ára. Þannig var þorskafli krókaaflamarksbáta kominn í 7.245 tonn í lok nóvember sem er aukning um 16% milli ára.


Heimild: Fiskistofa

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is