Nýverið svaraði sjávarútvegsráðherra fyrirspurn Adolfs H. Berndsens (D) um afla krókabáta sl. 5 fiskveiðiár. Í svarinu kemur m.a. fram að öll árin hefur mestum afla krókabáta verið landað í Bolungarvík. Fiskveiðiárið 2000/2001 sem var met aflaár hjá krókabátum lönduðu þeir 7.068 tonnum í Bolungarvík, sem jafngilti 11,2% af heildarafla þeirra það árið. Það ár ásamt næstu fjórum voru 3 af 5 hæstu löndunarstöðunum á Vestfjörðum.
Suðureyri er í öðru sæti 2000/2001 og því þriðja næstu 2 árin, fellur svo niður í 4. sæti 2003/2004, en er ekki meðal 5 hæstu á sl. fiskveiðiári.
Sandgerði og Ólafsvík hafa jafnt og Bolungarvík verið meðal fimm hæstu á þessu fimm ára tímabili. Sandgerði í öðru sæti sl. tvö fiskveiðiár næst á undan Ólafsvík sem var í öðru sæti fiskveiðiárið 2001/2002.
Tálknafjörður er meðal fimm hæstu hafnanna fyrstu 2 ár tímabilsins og Flateyri næstu tvö ár þ.e. 2002/2003 og 2003/2004.
Eftirtektarvert er að tvær nýjar löndunarhafnir eru meðal fimm efstu á sl. fiskveiðiári, Siglufjörður og Skagaströnd. Afli sem krókabátar lögðu upp á Siglufirði hefur tífaldast á 5 árum, var aðeins 387 tonn fiskveiðiárið 2000/2001 en á sl. ári endaði hann í 3.829 tonnum og á Skagaströnd hefur hann þrefaldast á sama tímabili farið úr 1.121 tonni í 3.688 tonn.
Sjá nánar: http://www.althingi.is/altext/132/s/0468.html











Skrifa athugasemd