Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Almenn samstaða um kvótaþak í krókaaflamarkskerfinu - Landssamband smábátaeigenda

Almenn samstaða um kvótaþak í krókaaflamarkskerfinu

| Athugasemdir (3)

Eins og greint hefur verið frá hefur Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða sem takmarkar krókaaflahlutdeild hjá einstaka fyrirtækum og einstaklinglingum.

Flestir félagsmanna sem haft hafa samband við skrifstofuna og tjáð sig um frumvarpið lýsa yfir ánægju sinni með það.

Helst er að þeir gagnrýna hversu hátt kvótaþakið er. T.d. segir Pétur Sigurðsson formaður KlettsPeturSig_100_2546.jpg í spjalli við smabatar.is að þeir sem hann hafi heyrt í finnist „þetta eru allt of háar prósentur, ef þær væru lækkaðar um helming þá væri þetta raunhæft, með þessum takmörkunum gæti kvótinn endað á höndum 20 – 30 útgerða með 30 – 50 báta. Það sé ekki sú dreifða eignaraðild sem LS hafi barist fyrir“.

Þeir sem eru annarrar skoðunar benda á að mörkin séu of lág. Í samtali við Hermann Ólafsson framkvæmdastjóra StakkavíkurHermannStakkavik_DSCF0016_1.jpg í Fiskifréttum frá í gær segist hann „ekki andvígur því að kvótaþaki sé komið á svipað og í stóra kerfinu en telur að mörkin hafi verið sett allt of neðarlega.“

3 Athugasemdir

Er sammála Pétri mörkin erun alltof há. ´

Eðlilegra væri að þau væru sett við 2-3%, Ekki er eðlilegt að miða mörkin í þessu kerfi við stóra kerfið, það eru allt önnur sónarmið sem hafa ríkt í þessu kerfi heldur en því.

Í krókaaflamarkskerfinu höfum við lagt áherslu á útgerðir einstaklinga og mer er ekki grunlaust um að við höfum náð þeim árangri sem raun ber vitni út á það.

Eins og Pétur bendir á geta aflaheimildirnar lent á höndum fárra aðila, fræðilega gætu þeir verið 17.

Það verður þó að segjast að þetta er skref í rétta átt eða hvað, máski má líka segja "Hvað með það þó svo fari" bara spurning um sjónarmið

Kveðja GP

Ég tel að mörkin megi ekki vera lægri.Þeim útgerðum sem eru með mestar heimildirnar gengur best í dag.Nú er því sem næst eingöngu gert út á línu í krókaaflamarkskerfinu og til þess að slík útgerð gangi upp með nýjustu tækni,þarf miklar aflaheimildir.Við megum ekki lifa í fortíðinni.
Sigurgeir Jónsson

Samála Pétri og Gunnari mörkin eru altof há 2% væri næri lagi 3% er meira seiga í hæri kantinum.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231