Í morgun opnaði Fiskistofa á nýjum stað. Stofan er nú til húsa í Hafnarfirði, nánar tiltekið að Dalshrauni 1, í nýrri byggingu andspænis versluninni Fjarðarkaup á horni Reykjavíkurvegar, Álftanesvegar og gömlu Reykjanesbrautar sem nú heitir Fjarðarhraun. Meðfylgjandi mynd, sem er tölvuteiknuð, sýnir bygginguna þar sem Fiskistofa er til húsa ásamt annarri starfsemi.
Símanúmer er hið sama 569-7900.
Fiskistofa hefur frá stofnun, 1. september 1992, verið til húsa að Ingólfsstræti 1 – Höfn húsi Fiskifélags Íslands. Höfn hefur nú verið selt og hafa nýir eigendur þegar tekið við húsnæðinu. Í húsinu verður starfrækt hótel í framtíðinni.











Skrifa athugasemd