Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

„Jöfnunarsjóðsfrumvarp“ afgreitt til sjávarútvegsnefndar - Landssamband smábátaeigenda

„Jöfnunarsjóðsfrumvarp“ afgreitt til sjávarútvegsnefndar

| Athugasemdir (0)

Í gær lauk 1. umræðu um „jöfnunarsjóðsfrumvarpið“ og var samþykkt að vísa málinu til sjávarútvegsnefndar. Eins og greint hefur verið frá hér á síðunni gerir það ráð fyrir að þorskaflaheimildum til jöfnunar sem úthlutað hefur verið frá fiskveiðiárinu 1999/2000 verði gerðar varanlegar. Í frumvarpinu er lagt til að úthlutunin taki mið af leyfilegum heildarafla við upphaf úthlutunar og á þessu fiskveiðiári. Þannig verði hlutfallið 198 þús / 250 þús eða 79,2% af meðaltalsúthlutun á því sjö ára tímabili sem úthlutunin hefur varað. Verði frumvarpið óbreytt að lögum samsvarar 8,4 tonna meðaltalið því 6,65 tonnum í þorskaflahlutdeild á þessu fiskveiðiári. Það ræðst síðan af leyfilegum heildarafla í þorski á fiskveiðiárinu 2006/2007 hvað aflahlutdeildin gefur á því ári.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231