Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Krókabátar aldrei fiskað meira - Landssamband smábátaeigenda

Krókabátar aldrei fiskað meira

| Athugasemdir (0)

Rétt fyrir áramótin var greint frá hvaða krókaaflamarksbátar hefðu aflað mest á árinu 2005. Hér á eftir verður haldið áfram að fjalla um aflatölur.

Alls lönduðu 720 krókaaflamarksbátar og varð heildarafli þeirra 66.724 tonn sem er um fimm þúsund tonnum meira en á sl. fiskveiðiári og sá mesti í sögu krókabáta.

Í þremur helstu tegundunum var aflinn þessi:

Þorskur....................38.725 tonn
Ýsa..........................18.536 tonn
Steinbítur................... 4.817 tonn

Þrír aflahæstu bátarnir í þessum tegundum voru:

Þorskur:
.................Hrólfur Einarsson ÍS.............758 tonn
.................Daðey GK...........................711 tonn
.................Guðmundur Einarsson ÍS......710 tonn

Ýsa:
.................Kristinn SH..........................442 tonn
.................Guðmundur Einarsson ÍS......394 tonn
.................Hrólfur Einarsson ÍS.............370 tonn

Steinbítur:
.................Narfi SU..............................294 tonn
.................Guðmundur Einarsson ÍS......239 tonn
.................Hrólfur Einarsson ÍS.............199 tonn


Tölur hér að ofan eru fengnar frá Fiskistofu og eru birtar án ábyrgðar.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231