Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Málstofa Hafrannsóknastofnunar - Landssamband smábátaeigenda

Málstofa Hafrannsóknastofnunar

| Athugasemdir (0)

Hafrannsóknastofnun hefur verið ötul við að kynna fyrir almenningi hin ýmsu verkefni sem unninn eru á stofnuninni og annan fróðleik hafið. Öflugasti vettvangur stofnunarinnar til þessarar miðlunar er Málstofan sem haldinn annan hvern föstudag í Sjávarútvegshúsinu Skúlagötu 4.
Stofnunin hefur nú birt dagskrá Málstofu fram til 19. maí en á tímabilinu verða flutt alls 8 erindi.

Næsta erindi verður 10. febrúar, en þá fjallar Guðrún Þórarinsdóttir um kræklingarækt á Íslandi. Hálfum mánuði síðar þann 24. eru „Niðurstöður úr haustralli 1996-2005“, en um það fjallar Kristján Kristinsson.

Málstofan er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.

Sjá nánar: http://www.hafro.is/undir.php?ID=177&REF=3

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231