Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Óveruleg breyting á heildarafla milli ára - Landssamband smábátaeigenda

Óveruleg breyting á heildarafla milli ára

| Athugasemdir (0)

Heildarafli ársins 2005 var 1.667.287 tonn samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Það er 61 þúsund tonnum minni afli en árið áður þegar aflinn var 1.727.975 tonn.

Þegar bornar eru saman helstu tegundir smábáta kemur í ljós að meira veiddist af ýsu, steinbít og ufsa á árinu 2005 en 2004, en þorskveiði minnkaði milli ára. Í tonnum talið var heildarveiðin í þessum tegundum eftirfarandi:

.............................2005.....................2004....................breyting

þorskur...............205.882.................220.027.................. – 6,4%
ýsa.................... 96.557.................. 84.669.................... 14,0%
steinbítur........... 15.232.................. 13.196..................... 15,4%
ufsi.................... 67.746................. 62.975....................... 7,6%

Í nýliðnum desember var botnfiskaflinn 36.476 tonn en 36.945 tonn í desember 2004. Afli flestra botnfisktegunda var álíka og í desember 2004. Meira veiddist af þorski og ufsa en minna af ýsu og karfa.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231