Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Færeyjar - samdráttur í veiðum en betri afkoma - Landssamband smábátaeigenda

Færeyjar - samdráttur í veiðum en betri afkoma

| Athugasemdir (2)

Heimasíðan hafði samband við formann Meginfjelags Útróðrarmanna, Auðunn Konráðsson og spurði hann hvernig hefði gengið á sl. ári.
Auðunn sagði síðast liðið ár hafa verið í slakara lagi hvað varðar fiskirí, en afkoman verið í meðallagi.Audunn_DSCF0005_3.jpg

Árið skilaði 18.800 tonnum af þorski og af ýsu veiddust 20 þúsund tonn. Samdráttur var í báðum tegundunum frá 2004. Fjórðungi minni þorskafli og ýsuaflinn minnkaði um 10%. Hins vegar jókst verðmæti ýsunnar um 250 milljónir og varð 2,34 milljarðar á árinu 2005. Verðmæti þorsksins minnkaði hins vegar um 13,1% og varð 4 milljarðar.

2 Athugasemdir

Það er fróðlegt að sjá tölur um afla hjá Færey-
ingum núna fyrir árið 2005.
Þetta kallar fram umræður hér á Íslandi, fyrir
10 eða 11 árum að vorlagi. Þorsteinn Pálsson var
þá sjávarútvegsrh. Fiskifræðingar frá Íslandi,
Færeyjum, Danmörku og víðar- alþjóðastofnunm og svo frv.
ÞEIR VORU SVO SPAKIR, AÐ ALGERT AFLAHRUN VÆRI
F Y R I R S J Á A N L E G T ´ Á FÆREYSKU MIÐUM.
Hrópað var 5000-6000 tonn af þorski á ári næstu
árin og svipað af ýsu. Ufsinn eitthvað skárri.
Enginn í funarsal á Hótel Loftleiðum kunni
við að andmæla spekingunum víða að. Löng þögn.
Þá stóð ég upp og spurði sjávarúrvegsrh. Fær-
eyninga: Hverning ætlið þið að lifa næastu 3-5 árin a´svona "aflatölum" og hverning skal skipta
á milli skipa, frá smábátum upp í skuttogara?
Mér líkaði vel við svarið: VIÐ GETUM EKKI FARIÐ
EFTIR ÞESSUM RÁÐLEGGINGUM. VIÐ LIFUM ÞAÐ EKKI.
VIÐ MUNUM VILJA VEIÐA FRÁ 15.000 T. AÐ UM 20.000 T
Enn dauðaþögn. Reynslan hefur sýnt að eitthvað
var alvarlega bogið við hugmyndir fræðinganna.
Þótt sum árin hafi gefið vel yfir 20.000 tonnin
má alltaf vænta einhverrar sveiflu, niður sem upp.

Að mínu mati standa Færeyingar vel að verki.
Gaman væri að LSB "aflaði" upplýsinga um veiðina
t.d. s.l. 15 ár á þorski, ýsu, keilu og ufsa.
Þetta vildi ég minna á vegna umræðu um "ráðgjöf"
Jóns Kristinssonar og skrifa frá "eðlisfræðini"
og fleiri hérna hjá okkur.
Með bestu kveðjum til Færeyinga. Jón Árm.Héðinsson

Lieð réttist hjá mér. Jón er KRISTJÁNSSON

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231