Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fundað um grásleppuna - Landssamband smábátaeigenda

Fundað um grásleppuna

| Athugasemdir (1)

Í dag er haldinn fundur fulltrúa veiðimanna og framleiðenda grásleppukavíars, LUROMA 2006. Fundurinn er haldinn í London og er sá 18. í röðinni, en hann hefur verið árlega frá 1989. Þátttaka á fundinum er mjög góð, 30 fulltrúar frá 11 þjóðum sækja hann.
Fundinum er ætlað að upplýsa um grásleppuveiðina sl. vertíð, hvernig staðan er á kavíarmörkuðunum og horfur fyrir komandi vertíð.
Það er Landssamband smábátaeigenda sem hefur allan veg og vanda að fundinum. Nánar verður fjallað um hann síðar í dag.

1 Athugasemdir

Gott kvöld:

Í ljósi núverandi ástands sölumála grásleppuhrogna,hlýtur það að vera spurning hvort ,,samkomulag'' á fyrri fundum hafi skilað íslenskum veiðimönnum einhverju. Í fyrra var talað um samkomulag fjögurra þjóða um að stefna að 27,000 tnr og hver varð reyndin?

Til að átta sig á hvort svari kostnaði að gera út á grásleppu í vor, væri gott að fá svör við eftirfarandi spurningum um atriði sem hljóta að hafa verið til umræðu á þessum fundi.

1) Liggja óseldar tunnur eftir, hér eða erlendis?
2) Hvaða verð voru algeng erlendis í fyrra, í evrum?
3) Er eitthvert ,,samkomulag'' aftur á borðinu?

Að lokum, að ofan stendur að LS hafi haft allan veg og vanda af fundinum. Hver er vegsemdin og hver var vandinn?

Með kveðju
Vilhjálmur Jónsson, Vopnafirði

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231