Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Línuívilnun langt komin í ýsu - Landssamband smábátaeigenda

Línuívilnun langt komin í ýsu

| Athugasemdir (0)

Nú þegar liðnir eru rúmir 5 mánuðir af fiskveiðiárinu eru 153 tonn eftir af því magni sem ætlað er til línuívilnunar í ýsu. Á fiskveiðiárinu takmarkast línuívilnun í henni við 1.472 tonn og höfðu 1.319 tonn af því verið nýtt í dag.

Af þorski er hins vegar ekki búinn helmingur af þeim 3.375 tonnum sem þar koma til línuívilnunar, nánar tiltekið 1.319 tonn.

Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Fiskistofu hafa 7.047 landanir verið skráðar til línuívilnunar það sem af er fiskveiðiári. 262 bátar hafa notið hennar og afli þeirra verið skráður í 49 löndunarhöfnum.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231