Nýverið birti dæmdi Hæstiréttur í máli íslenska ríkisins gegn Síldey ehf. Málið snérist um kvótasetningu í keilu og löngu sem sjávarútvegsráðuneytið ákvað með reglugerð16. ágúst 2001. Í reglugerðinni var ákvæði um að viðmiðunartímabil til aflareynslu yrði 1. júní 1998 til 31. maí 2001.
Í dómi Hæstaréttar segir þetta ákvæði reglugerðarinnar, „um lok viðmiðunartímabils veiðireynslu svo löngu fyrir útgáfudag hennar væri andstætt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/1990 og leiddi til tjóns fyrir gagnáfrýjanda vegna veiðireynslu, sem hann aflaði sér á tímabilinu frá 1. júní til 16. ágúst.
Í dómsorði segir m.a.: „Viðurkennd er skaðabótaskylda aðaláfrýjanda, íslensk ríkisins, á tjóni gangáfrýjanda, Síldeyjar ehf., vegna fyrirmæla bráðabirgðaákvæðis í reglugerð nr. 631/2001 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2001/2002 varðandi úthlutun aflahlutdeildar í löngu og keilu á grundvelli veiðireynslu, sem hann öðlaðist frá 1. júní til 16. ágúst 2001.“
Nokkuð hefur verið hringt á skrifstofuna og spurst fyrir um þennan dóm og hvort hann geti leitt til breytinga á krókaaflamarki í þessum tegundum.
Ólíklegt er að svo geti orðið þar sem Alþingi samþykkti lög (nr. 129/2001)
http://www.althingi.is/altext/stjt/2001.129.html
sem kveða sérstaklega á um kvótasetningu krókabáta. Í þeim er eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða um kvótasetninguna:
„Bátum sem krókaaflamarksleyfi fengu 1. september 2001 skal á fiskveiðiárinu 2001/ 2002 úthlutað aflahlutdeild í keilu, löngu og karfa á grundvelli veiðireynslu þeirra í þessum tegundum á tímabilinu 1. júní 1998 til 31. maí 2001. Að úthlutun lokinni skal endurreikna aflahlutdeild og aflamark allra fiskiskipa í keilu, löngu og karfa að teknu tilliti til þeirra breytinga sem stafa af þessari úthlutun.“
Sjá dóm Hæstaréttar í heild:
http://www.haestirettur.is/domar?nr=3790&leit=t











Skrifa athugasemd