Vegna fréttar í gær um fyrirhugaðar breytingar á slægingastuðli leitaði LS upplýsinga hjá Fiskistofu um hvert væri hlutfall þorsks og ýsu milli slægt og óslægt við löndun.
Skoðuð voru 4 sl. fiskveiðiár og til 16. mars sl. Af tölunum má ráða að óslægður afli fer vaxandi í ýsu en óveruleg breyting hefur verið í þorski.
Þar hefur hlutfallið verið frá 23% 2001/2002 (50.9 þús. tonna) í 25% (53,8 þús. tonna) á sl. fiskveiðiári. Það sem af er þessu fiskveiðári hefur 23% (28,0 þús. tonna) þorskaflans verið landað óslægðum.
Í tölunum kemur hins vegar fram að veruleg aukning er af óslægðri ýsu það sem af er fiskveiðiárinu þar sem hlutfallið er 35% (19,0 þús. tonn). Á sl. fiskveiðiári var 22% (21,4 þús. tonn) ýsunnar landað óslægðri, en aðeins 17% (6,9 þús. tonn) 2001/2002.











Skrifa athugasemd