Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Smábátafélagið Snæfell og Útvegsmannafélag Snæfellsness sammála - Landssamband smábátaeigenda

Smábátafélagið Snæfell og Útvegsmannafélag Snæfellsness sammála

| Athugasemdir (1)

Á fundi í Snæfelli sem greint hefur verið frá hér á síðunni var meðal fjölmargra mála rætt um fyrirhugað kvótaþak. Félagsmenn lýstu fyllsta trausti á stjórn LS og framkvæmdastjóra vegna þessa máls og voru á einu máli um að forysta félagsins hefði staðið vel að því málefni.Snaefell_Merki.jpg

Þá greindi formaður félagsins, Símon Sturluson, frá vinnu sem unnin hefði verið í því skyni að fá reglugerðarhólf um línuveiðar á norðanverðum Breiðafirði opnað. Meðal annars hefði hann ásamt formanni Útvegsmannafélags Snæfellsness, Ólafi Rögnvaldssyni, orðið sammála um að skora á sjávarútvegsráðherra að fella reglugerð nr. 262/1994 úr gildi. Þeir sendu því sameiginlegt bréf til ráðherra í nafni félaganna og sögðu það skoðun félagsmanna að reglugerðina ætti tafarlaust að fella úr gildi, hún ætti engan rétt á sér.

1 Athugasemdir

Það ber að fagna framsýni stjórnar Snæfells að hafa samstarf við félagsmenn L.Í.Ú. um sameiginleg málefni.Mættu sem flestir foristumenn L.S. og framkvæmdastjóri taka snæfellinga í því efni sér til fyrirmyndar.Og eitt er næsta víst, framkvæmdastjóri og formaður L.Í.Ú. hefðu komið fram með lýðræðislegri hætti gagnvart sínum félagsmönnum,en forysta L.S.gerði gagnvart sínum,í sambandi við kvótaþakið.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231