Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Breska verslanakeðjan Waitrose kaupir aðeins línuþorsk - Landssamband smábátaeigenda

Breska verslanakeðjan Waitrose kaupir aðeins línuþorsk

| Athugasemdir (0)

Í hádegisfréttum RÚV í gær var eftirfarandi frétt:

„Breska verslanakeðjan Waitrose hefur ákveðið að fersk og reykt ýsa og ferskur þorskur í verslunum keðjunnar verði framvegis einungis veiddur á línu en þennan fisk kaupir fyrirtækið frá Íslandi. Þetta er skýrt með umhverfisstefnu fyrirtækisins og kröfu markaðarins um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Áður hefur fyrirtækið tekið úr verslunum sínum ýmsar fiskitegundir vegna hættu á ofveiði þeirra.
Waitrose tilkynnti þessa ákvörðun sína á skírdag. Í tilkynningu félagsins kemur fram að þessi ákvörðun sé rökrétt framhald þess að fyrir 7 árum hafi verið ákveðið að hætta að selja þorsk og ýsu úr Norðursjónum vegna hruns þessara fiskistofna þar. Þá sneri Waitrose sér til Íslands í staðinn og segir í tilkynningunni að það hafi verið gert vegna hins sjálfbæra fiskveiðikerfis á Íslandsmiðum. Þetta sé í samræmi við þá eindregnu stefnu fyrirtækisins að stuðla að sjálfbærni og góðri umgengni við náttúruauðlindir. Waitrose hafi nú á boðstólum mesta úrval af línuveiddum fiski sem finnist á markaðnum og frekari skref í þessa átt verði tekin síðar á árinu. Tekið er sérstaklega fram að með línu sé valinn fiskur veiddur með beittum önglum í stað dreginna netveiðarfæra.
Haft er eftir Jeremy Langley í innkaupadeild Waitrose að í 10 ár hafi fyrirtækið rekið ábyrga umhverfisstefnu og það sé ekki síst vegna krafna frá kaupendum, það er almenningi. Fyrirtækið hafi verið fyrst til að taka villtan Atlantshafslax af vöruskrá sinni 1996, síðan hafi fleiri tegundir fylgt svosem bláuggatúnfiskur, styrja og styrjuhrogn, skata, langa, nokkrir háffiskar og fleiri tegundir.
Waitrose er meira en 100 ára gamalt fyrirtæki og rekur um 170 stórmarkaði í Englandi og Wales, auk nokkurra tuga annarskonar verslana. Hjá fyrirtækinu starfa 27.000 manns og í fyrra var velta þess ríflega 600 miljarðar króna.“

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231