Í næstu viku mun Sturla Böðvarsson samgönguráðherra leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um eftirlit í sjávarútvegi. Breytingin miðar að því að fyrir árið 2010 verði myndavélar komnar í nánast allan fiskiskipaflotann. Verða þær beintengdar við Veiðieftirlitið eftir því sem kostur er, en að öðrum kosti verður skylt að skila upptökum að veiðiferð lokinni. Ætlunin er að geta fylgst með brottkasti, en eins og kunnugt er liggur íslenska sjómannastéttin stöðugt undir því ámæli að miklum afla sé fleygt fyrir borð.
Orðrétt segir í umsögninni með frumvarpinu: „Sú staða er með öllu óviðunandi, bæði fyrir þá sem starfa á fiskiskipaflotanum sem og þjóðina alla, að ekki fáist niðurstaða í svo alvarlegu máli. Tilraunir með slíkar myndavélar um borð í Baldvini Þorsteinssyni EA 10 á árunum 2001 – 2003 og nú nýverið krókaaflamarksbátnum Guðmundi Einarssyni IS 155 hafa gefið mjög góða raun. Því leggur Samgönguráðuneytið til að þessi leið verði valin.”
Stjórn Landssambands smábátaeigenda (LS) hefur harðlega mótmælt framkomnu frumvarpi. Í ályktun stjórnarinnar um þetta mál er m.a. bent á þá staðreynd að eftirlit í íslenskum sjávarútvegi sé fyrir löngu komið út fyrir öll skynsemismörk og stefni í hreinar persónunjósnir. LS mun í vikunni funda með lögfræðingum um málið.

Mynd: Guðmundur Einarsson ÍS 155. Svarti depillinn í mastrinu er eftirlitsmyndavélin sem nýverið var gerð tilraun með.











Hverskonar fíflagangur er þetta eiginlega, er fólkið ekki í lagi?
Ef það á að fara að skylda menn með örfá tonn til að setja upp eftirlitsmyndavélar um borð þá held eg að tími se kominn til að hætta endanlega og sérstaklega ef hel..... flotbúningurinn bætist svo líka við, eða erum við kannski lausir við hann?
Kveðja Gunnar Pálmason
Það er nú ekki amarlegt að fá fínan snaga fyrir gallan sinn, svona allavega á meðan að maður þarf að gera þarfir sínar en það verður kanski bannað eftir 2010, því að allt brottkast er jú bannað og það hlítur að eiga við þetta líka.
Annars er jú kanski ágætt að geta hringt svona eftirá í veiðieftirlitið til að vita hvort að maður sé alveg örugglega ekki VEL SKEINDUR, því að það hlítur að sjást vel í þessum fínu myndavélum þeirra sem greinilega eiga bjarga fiskveiðum við Ísland um ókomna framtíð.
Er þetta ekki APRÍL GABB?